Spilling af verstu sort

Hvernig dettur fólki svona hryllingur í hug? Það var augljóst fyrirfram hvað myndi gerast.  Fimmtán ára gömul lokuð inni með harðsvíruðum glæpamönnum, í heilan mánuð!!!!! Það á að refsa þessum lögreglumönnum, þetta var yfirvegaður glæpur, mannslífið er einskis metið. Þetta er hræðilegt.

Manni finnst nóg um þegar íslenskt dómsvald nýtir engan vegin réttar rammann í naðugunarmálum, það mætti halda að þolandinn væri sökudólgurinn. Það er öruggt mál að réttarafarið í Brasilíu er ömurlegt fyrst svona nokkuð getur átt sér stað og mikil þörf á að taka það til endurskoðunar, en það er víða í landi pottur brotinn. Lítum okkur nær, blinda auganu er beitt víðar en í Brasilíu.  Þetta er óhugnanlegt.


mbl.is 15 ára stúlka sett í fangaklefa með 20 mönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Þetta er algjör hryllingur, kona verður gjörsamlega orðlaus yfir svona meintri og ljótri aðferð.  Grimmdin er með ólíkindum.

....

Kveðja inn í helgina!

www.zordis.com, 23.11.2007 kl. 12:10

2 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Já....Zordis, grimmdin er ótrúleg.

Laissez-Faire, það er víst ekkert til sem heitir jafnræði þegar að grimmd og illsku mannskepnunnar kemur. Minnstu ekki á réttarfarið í Brazilíu ógrátandi, börn eru börn sama af hvoru kyninu þau eru.

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 23.11.2007 kl. 12:45

3 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Auðvitað er það lika fréttnæmt þegar drengir verða fyrir svona misþyrmingum, þetta er hræðilegt á hvorn veginn sem er. Götubörnin í Brazilíu og líklega víðar í S-Ameríku eru oftar en ekki drengir,hvar eru mæður, (gamla hlutverkið) eða feður þessara barna? Brazilía er eitt af vígum karlaveldisins, ber okkur öllum ekki skylda til að vernda börnin okkar?

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 23.11.2007 kl. 13:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband