Baugsstjórn...

´Hegðun Jóns Sigurðssonar formanns Framsóknarflokksins er hegðun þess sem tapar, biturleiki og árásagirni einkennir hegðun hans. Hvað er hann að blanda Baugsmálinu inn í þessa pólitík, það er nú komið meira en nóg af því máli. Guðni Landbúnaðarráðherra hegðar sér lítið betur, það er auðséð að það er erfitt að yfirgefar ráðherrastólana, það sýnir sig. Vonandi ganga þessar samningaumræður sem fyrst, þetta verður sterk stjórn. Og við sjáum svo bara til.


mbl.is Jón Sigurðsson: Staðfestir trúnaðarbrest milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hæ Sóldís, mér persónulega finnst ekkert skrítið þótt þessir herrar séu sárir, en þar sem þetta eru leitogar ættu þeir svo sem ekki að missa sig, fyrir framan alþjóð.

Sigfús Sigurþórsson., 18.5.2007 kl. 20:46

2 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Hæ Sigfús....auðvitað er alltaf sárt að tapa. En í pólitík og ástum er víst allt (eða næstum) leyfilegt. Pólitík snýst ekkert endilega um heiðarleika, hún snýst um eitthvað allt annað. Löng reynsla ætti að hafa kennt okkur og þessum herrum, að enginn er annars bróðir í leik. Þetta er Refskák á pólitísku taflborði. SO....vonum bara það besta og dönsum með. Hehe...

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 18.5.2007 kl. 20:55

3 Smámynd: www.zordis.com

Það er svo sárt að tapa .... sárt að sitja ekki á toppnum eins og sykurdreipt jarðarber á toppi ísjakans sem fellur við hvern bita! 

Njótum þess sem þjóðin kaus og treystir !  Þeir sem eru tapsárir geta bara klappað á eigin öxl hvaða nafni sem þeir nefnast eða flokki þeir tilheyra! 

www.zordis.com, 18.5.2007 kl. 21:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband