SARKOZY.....

Það er víst hægt að fullyrða að Sarkozy hafi það ekki KÓSÝ um þessar mundir. Eins gott að gæta TUNGU sinnar. Tounge
mbl.is Hart deilt á Sarkozy vegna ummæla hans um barnaníðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er list.....?????

Það er svo margt sem við sjáum, sumt líkar okkur býsna vel, er það þá list? Ekkert endilega en það getur verið  list,  því það sem við sjáum er svo vel gert og frábært að við vitum stundum ekki undir hvað við eigum að flokka það.

Hrúga af spýtnabraki, hvað er það? Hrúga af spýtnabraki, það er engin spurning í mínum huga, en það er ekki þar með sagt að sumir líti brakið ekki listrænu auga. Allavega eru svona hlutum stundum stillt upp á listsýningum og þú veist það um leið og þú gengur inn úr dyrunum á listasafninu að þetta flokkast sem list. Hvað sem þér finnst. Blush

Meira að segja gömlu meistararnir fengu að kenna á gagnrýni. Mynd sem er í miklu uppáhaldi hjá mér, ,, Fæðing Venusar," eftir Botticelli, fékk heiftarlega útreið hjá öðrum meistara sem hafði málað málverk með sömu hugmynd í huga, en mistekist. En hvernig stendur þá á því að maður heillast af mynd Botticellis, persónur myndarinnar eru alls ekki fullkomnar, ,,óeðileg hálslengd Venusar, hallandi axlir og annarleg tengsl vinsti handleggs við búkinn."(Saga Listarinnar bls. 264)  Einmitt þessi mannlegi ófullkomleiki gerir myndina svo frábæra, maður tekur ekki eftir þessum hlutum fyrr en bent er á þá. Það sem meira er, þeir skipta ekki máli, heildarmyndin heillar mann.  En, og það er líklega það sem skiptir meginmáli að Botticelli slær rétta tóninn, hittir í mark. Kissing

Ég var að ljúka við bókina, ..Sunnudagsklúbbur heimsspekinganna," eftir Alexander Mc Call Smith. Ég var ekki eins hrifinn af henni og Spæjarastofunni, þar hitti hann á rétta tóninn. Smile Og hitti beint í mark.

 


Lagt í langferð.....

Nú er það Silkileiðin. Hvað margir skyldu nú vita um þá leið?
mbl.is Á hjóli til Túrkmenistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á ég að gæta bróður míns......

Það er ekkert sem réttlætir nauðgun, hvort sem er á barni eða fullorðnum. Það er nöturlegt til þess að vita að líf fólks hefur verið gjöreyðilagt vegna þess að einhverjum hefur þóknast að misþyrma því andlega og líkamlega. Eiga börn t.d. það í vændum að þurfa að taka afleiðingum gjörða misyndismanna, að þeir hafi þá afsökun og réttlætingu að hryllingurinn sé meðfæddur.  Auðvitað er þetta viðkvæmt mál, en það þarf að taka á því. Woundering  
mbl.is Ummæli Sarkozys um barnaníðinga valda uppnámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölkvæni.....

Hehe...þessi frétt er alveg frábær. LoL
mbl.is Fjölkvæni er ekkert spaug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ja....hérna....hérna..

Mér finnst næstum jafnfurðuleg, að lesa bloggið um greinarnar eins og afsökunarbeiðnina. Ég myndi nú gjarnan vilja sem bloggari, að það væri ekki alltaf sami maðurinn sem gerði athugasemdirnar undir mismunandi nöfnum, með og móti sama blogginu. Bloggið er nú engin heilbrigðisstofnun. EÐA HVAÐ.Blush
mbl.is Biður þjóðina afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einkamál.....?????

Nú er það slúðrið sem blívur.  Heart  InLove   Ástarmál fræga fólksins.

Hve langt er hægt að ganga.....?????

Erum við Íslendingar eins óhultir og við héldum. Annað hefur komið á daginn. Að skrifa einhvern ósóma og biðjast svo afsökunar eftirá, er engan veginn nógu gott. Það hefur sýnt sig. Woundering

 


REIÐI OG SORG

Það er ekki það, að maður viti ekki um misnotkun, andlegt og líkamlegt ofbeldi. Heldur hitt, hvað maður er minntur hrikalega á þessar staðreyndir. Og þessar fréttir skekja mann alltaf til. Hvernig er það mögulegt að misnota saklaust og varnarlaust barn, hvar eru foreldrarnir sem eiga að vernda börnin sín? Hvað er hægt að gera í stöðunni þegar dómsvaldið sjálft bregst. Drepa níðingana? Nei, það má ekki, segja lögin, þau eru víst til að vernda okkur, sek eða saklaus. Þangað til kemur að geðveikum kynlífsfíklum, þá er dómsvaldið með allt á hreinu. Menn sem hafa misnotað börn frá unga aldri til táningsára og það fleiri en eitt, sleppa svo ótrúlega vel þegar kemur að því að dæma fyrir ódæðið. Eitthvað smotterý er ákveðið til handa glæpamanninum, skilorðsbundið smotterý eða fyrning. Og þessum truflaða einstaklingi er sleppt út í þjóðfélagið, líklega svo hann geti nú óáreittur haldið iðjunni áfram. Devil 

Líklega verða foreldrar að fara að vígbúast, þannig er staðan núna. Í nýlegri könnun sem framkvæmd var á Indlandi kemur heldur betur á daginn að börn eru misnotkuð þar ekkert síður en hérna á Íslandi. Og þar eins og hér eru ofbeldisseggirnir örugglega ekki dæmdir. Svona lið ætti að hengja upp á tánum á almannafæri, þar sem allir geta sýnt þeim fyrirlitningu og þá smán sem þeir eiga skilið. Ég held það væri ekki vitlaust að bjóða þeim sem eru í aðstöðu til að dæma þessa þrjóta, leyfa þeim að sjá hvernig lögmál frumskógarins virka. Ekki virka þau lög sem eru sett til verndar þeim sem þurfa svo sannarlega á réttlæti og stuðningi að halda, þolanda ofbeldisins. Þau virðast virka öfugt. Og það veldur bæði reiði og sorg. Crying


SUPER EGÓ.......

Hvað eru bandaríkjamenn að þvælast í mið-austurlöndum, þeir gera stórkostlegan usla og meira en það. Þúsundir saklausra manna liggur í valnum og virðist ekkert lát vera á hryllingnum. Crying Það er mál að linni og það fyrir löngu síðan.

Það er svo sem löngu vitað að þeir/þær sem leita í pólitík gera það ekki af hugsjón. (Einstaka undantekningar) Fólk vill völd, það vill ráða yfir þér og mér og stjórna ferðinni til Vítis. Því ekki er verið að fara neitt annað, ef við tökum stefnu Bush fyrir, sem dæmi.

Íslendingar nutu þeirra foréttinda að vera í skjóli USA svo lengi sem þeim, bandaríkjamönnum,  þóknaðist. Þvílík forréttindi, og vera svo sparkað út í ystu myrkur með draslinu sem varnarherinn skildi eftir. Og við Íslendingar með alla menninguna og sögurnar af Víkingunum. Wink Við þessi stolta þjóð.

En það er víst sama hverju er mótmælt, pólitíkin er söm við sig og fer sínar eigin leiðir. Og nú brenna Shítar bandaríska fána á mótmælafundi,......


mbl.is Íraskir sjítar brenna bandaríska fána á mótmælafundi í Najaf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband