ÓVINIR....

Það getur tæplega staðist að vinir okkar reki hníf í bakið á okkur. Eða hvað? Núna nýverið hafði, svokallaður vinur, í nafnleysi sett slíkan óþverra inn á bloggið, (Netið, þar sem allir gátu lesið) að það kostaði tár og slíkar sorgir, en sem betur fer hafði sú sem í hlut átti, væntanlegt fórnarlamb nafnlausu illskunnar, það hugrekki í sér, að viðkomandi lét rekja slóðina. Það er nefnilega hægt að rekja slóðir, þótt á Netinu sé. Gerir fólk sér ekki grein fyrir því að upp komast svik um síðir, stundum tekur tíma að komast að hinu sanna, en það gerist.

Í þessu tilfelli, játaði viðkomandi sem setti óþverrann inn sekt sína, en var jafnframt yfir sig fegin að nafnið hennar/hans skúrksins, var ekki sagt upphátt. En samt hafði óþverinn og sorinn verið settur inn þar sem allir gátu lesið, inn á síðu viðkomandi. Hvað er að fólki, svona hegðun er engan veginn sæmandi og þarfnast nánari skoðunar. Hvað gerir það að verkum að fólk gerir svona andstyggilega hluti, það getur ekki verið andleg heilbrigði sem ræður ferðinni.

Það eru allar færslur til, ekki bara viðkomandi þessu máli. Heldur öllum málum! Og hér eftir, og jafnvel hingað til verða mál tekin til skoðunar. SO......BEWARE OF THE WOLVES. Police 

UPP KOMAST SVIK UM SÍÐIR.......Og þetta er ekki hótun......heldur staðreynd. Bandit


Hverjum er verið að þóknast......?

Að vera grannur er eitthvað sem svo margar,sérstaklega konur eru alla tíð að berjast við. Stundum fer allt úr böndunum og það er hræðilegt álag á alla fjölskylduna. Ég veit dæmi þess að einn einstaklingur innann fjölskyldunnar er haldin þessari megrunarfirru, en öll fjölskyldan þarf að leita til geðlækna og hefur gert það. Samt er megrunarfíkillinn tágrönn en sér ekkert nema fituklessur þegar hún lítur í spegilinn og svo bætast uppköstin við. Sú sem á í hlut er svo falleg í andliti en auðvitað er líkaminn ekkert nema skinn og bein og þar að auki er hún svo greind nema skynsemi sýnir hún ekki þegar að matnum kemur. Þetta er sko vandamál. Crying

Að vera grannur bara til að geta verið flott til fara, er allt annar handleggur. Smile Að hafa stjórn á kringumstæðum er það sem allir vilja, en það tekst, því miður ekki alltaf. Frown


mbl.is Alltaf í megrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með allt á hreinu.....

Það er svo frábærlega sniðugt að skipta um nafn. Sumir gera það tilneyddir en aðrir ánægjunnar  vegna og það er flott. Wink

Hinsvegar hefði ég í sporum Talullah valið mér eitthvað skárra en það sem hún valdi, hehe. Þetta er víst ekki algjört smámál að heita einhverju nafni sem fólk er ekki ánægt með. Sem sagt ef fólk er óánægt með nöfnin sín, þá er hægt að breyta. Það gera sumir, en þá er valið ekki alltaf rétt, miðað við kynferði. Kannski að kynskiptaaðgerð ætti betur við. WHO KNOWS. WinkWinkWinkWink


mbl.is Talullah Willis skiptir um nafn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fleiri konur....!!!!!!

Er þetta tímanna tákn?
mbl.is Fleiri konur doktorar en körlunum fækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NAFNLEYND.....ÚPS....

AHA.....nafnleysi, Var einhver að kvarta?????? Wink

 FLOTT FYRIRMYND......Wink


mbl.is Halle Berry notar spjallrásir til að forðast sviðsljósið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

JAFNRÆÐI.....

Einu sinni var ég að vinna með konu sem var komin af fjórum fínustu ættum Íslands. Það var sem sagt, tvennt af hvoru, konan átti tvær ættirnar og maðurinn tvær. En það var segin saga að þegar dæturnar af þessum fínu og góðu ættum komu heim til sín þurftu þær alltaf að byrja á því að meta stöðuna. Var allt í lagi? Voru vel ættuðu foreldrarnir í góðu jafnvægi. Hvað vel sem þær duldu sig, þá virkaði skap foreldranna, eins og barómeter á þeirra skap og líðan.  Allt leit svo vel út, séð utan frá, en það var svo ömurlegt og óútreiknanlegt þegar inn var komið. Aumingja stelpurnar liðu sálarþjáningar, en útí frá  var yfirborðið slétt og fellt. Svona er það stundum, innviðirnir eru ekki alveg SOLID. GetLost

Smá hugleiðing í tilefni af föstudeginum 13ánda. Woundering


Silvía Nótt....gleymd......??????

Ekki aldeilis!!!!!!! GetLost  Lítið þið á myndina sem fylgir fréttinni, hehe. 
mbl.is Silvía Nótt ekki með öllu gleymd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NEHEI....Ekki slúður

Þetta gæti orðið flott par, með sameiginleg áhugamál, engin rifrildi í áheyrn barnanna. Svona eiga góð sambönd að vera. Það er sagt að illvíg rifrildi hafi meiri áhrif á börnin en foreldrarnir gera sér grein fyrir. Ekki getur verið að þögnin ríki hjá hjónaleysunum þar sem þau eiga svona margt sameiginlegt. Húrra fyrir þessu.Wink  Þó það sé föstudagurinn 13ándi. Kissing
mbl.is Nýtt par í Hollywood?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ást....

Þessi grein finnst mér forvitnileg, og þegar, og ef, kemur út bók með þessum bréfum, les ég hana örugglega. Wink
mbl.is Hemingway og Dietrich sendu hvort öðru ástarbréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kurt Vonnegut......

Nú er Vonnegut gengin á fund feðranna, ég las á sínum tíma þessa frægu bók hans, "Slaughterhouse five." Hann var óneitanlega sérstakur og fór eigin leiðir og komst upp með það. Halo
mbl.is Kurt Vonnegut látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband