Sjarmerandi....eða hvað...???

Ég sé að margir hafa áhuga á þessari frétt, kannski ekki nema von. Að fá skalla, er eitur í beinum sumra karlmanna, það er meira að segja þekkt fyrirbæri að karlmenn nái sér í toppa til að hylja bersvæðið. Sem betur fer, fyrir suma, er, að það er í INN núna að vera með nauðrakað höfuð. Það eru ekki konur einar sem elta tískuna, annars getur það bara verið sjarmerandi að vera með smáskalla, eða jafnvel nauðrakaður, ef að höfuð lagið er þannig. Wink

 Það er að segja, ef að allt er í lagi með toppstykkið sem er undir.  Whistling


mbl.is Vonir glæðast um að hægt sé að meðhöndla skalla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Það er nú bara nokkuð sexy að vera með skalla .... eða   allavega betra en að vera með "túpei" 

www.zordis.com, 19.5.2007 kl. 16:01

2 identicon

Skil ekki allt þetta fjaðrafok í kringum þessa skalla, það er nú bara karlmannlegt að vera með smá skalla, tákn um mikið magn af testosteróni í blóðinu er það ekki ... 

Æðisleg mynd sem þú ert með við nafnið þitt á síðunni, þessi með trénu!!!  Hvaða mynd er þetta???

Íris (IP-tala skráð) 19.5.2007 kl. 17:13

3 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Þetta er bara eitthvað tré. En finnst þér það flott? Hehe.... En þetta með Testerónið í blóðinu, það hljómar nú vel. En ég er ekki alveg með það á hreinu.

Ég er sammála þér Zordis....það getur nefnilega verið rosa sexý að vera með skalla ef hann er staðsettur rétt. Skalli...svona hringur í hvirflinum minnir mig dálítið á, draugasöguna, Garún, Garún. Það finnst mér dálítið hallærislegt. En hvað um það, skalli getur virkað flott.

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 19.5.2007 kl. 20:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband