Leyndarmál geta sko orðið algjört eitur í beinum. Þau einhvernvegin negla mann niður, einhver segir eða gerir eitthvað sem ekki má fréttast og trúir manni svo fyrir öllu saman. Og eitt er víst að það hefur alls ekki verið beðið um þessi leyndarmál. En þeim er samt hvolft yfir mann, maður er víst svo frábær vinur.
ARRRRG.... þessi er eins og manni líður, með leyndarmálið. En þessi er víst maður sjálfur í augum trúnaðarmannsins.
Er þetta að vera KÓARI? Ég bara spyr.
Heyrumst....
Lífstíll | Mánudagur, 26. febrúar 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Dagurinn byrjaði svo sem nógu vel, með sól og stillu. Ég trimmaði að hluta í Kringluna en tók svo lyftuna af annari hæð og uppá þá þriðju. Sem ég er að leggja af stað í lyftunni kemur eldrauð kona í framan á hlaupum og vill sjáanlega komast í lyftuna með mér, en það var of seint. Á eftir hitti ég elrauða konuna og þá sagði hún mér að hún væri illa haldin af innilokunarkennd og hefði endilega viljað verða samferða mér.
Ég fékk töluverða sektarkennd, en reyndi að hugga mig með því að ég hefði nú ekkert þekkt konuna.
Doktorinn sem ég hitti á eftir var hinsvegar bráðskemmtilegur og það lagaði hugarástandið að mun. EN.....ég er víst á leið í blóðrannsókn og til að úr því geti orðið verð ég að vera fastandi frá því klukkan tíu og þangað til að ég mæti hjá blóðsugunum. En sem betur fer er ekkert alvarlegt í gangi bara tjékk.
Til að bæta ástandið náði ég í kvikmyndina," I Kina Spiser De Hunda," það er mín næring í kvöld.
Heyrumst.......
Lífstíll | Mánudagur, 26. febrúar 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dagurinn í dag er fyrir margra hluta sakir stórmerkilegur, Martin Scorcese fékk loksins Oskarinn. Það var fyrir löngu síðan kominn tími til að margverðlauna þessa hetju kvikmyndinna, en loksins, loksins. Sumir bíða ansi lengi eftir viðurkenningu og þessi viðurkenning staðfesti það.
Var að horfa á myndina " I Kina Spiser De Hunde," hún er mögnuð, og fór langt fram úr öllum vonum. Þetta er fimm stjörnu mynd og á hverja einustu þeirra skilið. Efnislega er myndin alveg furðuleg og stöðugt að koma manni á óvart og það gerir áhorfandann yfir spenntann, þetta getur ekki staðist. En það er og gerist. Það sem þarf er, ,,Bein Í Nefinu," til að trúa því sem gerist. Eina ráðið er að horfa og meðtaka. Og njóta.
Heyrumst.....
Lífstíll | Mánudagur, 26. febrúar 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á smáferðalagi um bloggheima hef ég komist að því að fólk er ótrúlega illa haldið andlega, og þá sérstaklega yfir þessum fréttum um Klámráðstefnuna. Langflestir líða alveg sálarkvalir og kenna femínistum langmest um þetta. Auðvitað komu þessi harkalegur viðbrögð mér til að hugsa um nokkur atvik sem áttu sér stað fyrir dálitlu síðan, eða nokkru síðan svo ég sé nú nákvæm eins og sumir. Maður nokkur var svo illa haldin útaf einhverjum kvennamálum þ.e. hann var hrifnari af konunni en hún af honum, og að auki var hún lauslát og gerði víst ýmislegt gruggugt. Og þetta náttúrulega æsti manninn upp áháa C. Það var eiginlega alveg sama um hvað ég talaði við manninn, ég hélt í sakleysi mínu að veðrið væri OK, en svo var ekki. Hann gat á einhvern dularfullann hátt fundið það út að Femínistar ættu einhvern þátt í því.
Og svona liggur landið núna, við Íslendingar erum á heljarþröm, pólitískt og allavegana vegna þess sérstaklega að Klámþinginu var blásið af. (Spaugstofan tók alveg brilljant takta um málið í gærkvöldi.) ÚFF....sér bara ekki fyrir endann á þessu hrikalega máli? Og það eru kosningar framundan.
Já...alveg rétt ég verð að klára sögu mannsins sem var með lauslátu konuna. Hann náði sér í aðra konu og allt er í lukkunar velstandi, núna allavegana. Hvað lengi sem það nú varir, það er nefnilega ferlega vont að vera draughræddur.
Heyrumst.......
Lífstíll | Sunnudagur, 25. febrúar 2007 (breytt kl. 23:00) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Langlífur vegna skírlífis?
107 ára Hong Kong-búi, Chan Chi, telur ekki ólíklegt að skírlífi eigi þátt í því að hann hafi náð svo háum aldri. Chan á erfiðara með að standast tóbak og fær sér enn sígarettu af og til. Hann hefur ekki stundað kynlíf í um 80 ár.
,,Ég veit ekki af hverju ég hef lifað svona lengi," segir Chan í samtali við South China Morning Post. ,,Ef til vill er það vegna þess að ég hef lifað kynlífslausu lífi í mörg ár... frá því ég var þrítugur," segir Chan. Eiginkona hans lést í seinni heimsstyrjöldinni.
Chan starfaði áður sem kokkur og segir fitulítið fæði og líkamsrækt að morgni dags einnig hafa haldið honum á lífi. Chan segir tóbak hafa freistað hans meir en kynlíf. Hann leggur til að sígarettureykingar verði bannaðar með öllu svo hann geti hætt að reykja. Reuters segir frá þessu.
Gat ekki á mér setið að kópíera þessa frétt úr MBL sérstaklega eftir að boðað var að hægt væri að lækna hreinlífi. Þetta vekur upp spurningar. Heldur betur.
Þegar ég sá inni á einu blogginu að hægt væri að lækna hreinlífi (hafði ekki hugmynd um að hreinlífi væri sjúkdómur.) þá vaknaði forvitnin allhressilega. Enda ætla ég að fylgjast með þessu máli.
Heyrumst......
Lífstíll | Sunnudagur, 25. febrúar 2007 (breytt kl. 20:39) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tæknin lætur ekki að sér hæða, og læknislistinni fleygir fram. Einu sinni fyrir margt löngu var bara farið í plat-læknisleik og það bara dugði. En ekki lengur, nú skal slagur standa og liðið læknað í eitt skipti fyrir öll.
Ekki veit ég hvort einhverjar leynilegar upplýsingar hafa borist frá liðinu sem var blásið á eða hvað. Allavega ,, stendur " mikið til, hvort það eru hóplækningar í boði er ég ekki með á hreinu. En ég veit fyrir víst að eitthvað mikið ,, stendur" til. Sem sagt það er ljós í enda gangnanna.
Nú er von um betra líf. Ég ætla sko að taka slaginn, núna.
Heyrumst.....
Lífstíll | Sunnudagur, 25. febrúar 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Veðrið er ótrúlega gott og fallegt. Kalt að vanda, en sól og fínt. Gæti ekki verið betra.
Ég hef verið að rembast við að koma inn mynd á hausinn á blogginu, mynd sem ég tók sjálf. En, ekkert gengur.
Heyrumst....
Lífstíll | Sunnudagur, 25. febrúar 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég leit inn á stjörnuspekina hans Gunnlaugs þar er ýmislegt merkilegt í gangi. Plútó sem er pláneta tiltektar og hreinsana er á fullu núna og þetta hreinsunar skeið á eftir að vara næstu 4 til 5 ár.
Nú dugir enginn feluleikur, allt verður gegnsætt og uppi á borðinu. Síðustu uppákomur benda til að mikið sé hæft í þessu. Það er alveg þess virði að líta inn á Stjörnuspekina og sannfærast. Það hefur allt verið morandi í mótmælum sem fólk að öllu jöfnu lætur yfir ganga og ypptir bara öxlum. En nú skal tekið hraustlega á málum. Og það er svo sannarlega gert.
Dæmin láta ekki á sér standa, Byrgið, er eitt málið og þau eru mikið fleiri, Klámráðstefnan annað og það má svo sem telja áfram, en hvað er eftir? Það er stóra spurningin.
Heyrumst......
Lífstíll | Laugardagur, 24. febrúar 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég var ekki fyrr búin að opna fyrir fréttirnar og daginn, þá var Christina Ponga í sviðsljósinu. Sú kona er víst talsmaður hópsins sem ætlaði að koma til Íslands til að hvíla sig (eftir hvað?) og í
leiðinni að njóta íslenskrar náttúru. Ég lái henni það svo sem ekkert að vilja koma hingað, það er víst rosalega eftirsóknarvert. ( Þessir innfæddu hafa ekki undan að bölva ríkisstjórninni og Baugi og bönkunum og skattinum og öllum þessum álögum, kosningalofoforðum og guð einn veit) En svo vildu sumir ekki fá hana og liðið sem var í kippunni og þá hótar hún málsókn. Hún skilur ekki að það sem sumum þykir sætt finnst öðrum óætt.
Þetta er sko virkilega þess virði að skoða nánar. Ef fólk er ekki að gera eitthvað sem gefur eitthvað í aðra hönd s.s. peninga, hvernig er þá hægt að vera að tapa einhverju. Eitthvað er heilinn tregur að meðtaka þetta, þó erum við sem búum á þessum eftirsótta klaka ýmsu vön.
Peningar eru víst þannig að þeir vilja vera þar sem hinir peningarnir eru, sem sagt félagslyndir. Svo er sumt fólk þannig að það vill vera þar sem hinir eru sem eru að gera það sama, eða þannig. Guð, ég vona að þetta skiljist.
Best að taka þetta fyrir í áföngum, svo að ekkert fari á milli mála. Eitt er víst að náttúran er söm við sig.
Heyrumst.....
Lífstíll | Laugardagur, 24. febrúar 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er dálítið skrítið með samviskuna, stundum virðist vera hægt að sveigja hana beygja eftir hentugleikum hverju sinni. En á endanum bítur hún í bláskottið og það getur verið býsna sárt. Þá er oft brugðið á það ráð að yfirfæra hörmungina á eitthver annann og láta viðkomandi virkilega þjást. Og sá hinn sami eða sama botnar ekki neitt í neinu, jeminn...þetta lýsir sér helst eins og þurrafyllerý.
Það eru ýmsar hugsanir sem fara í gang þegar fólk sem komið tilfinningalega og allvegna, í þrot. Þá er stundum gripið til ómerkilegra meðala.
Smáhugleiðing ....um tilveruna. Það er sko margt skrýtið í kýrhausnum.
Heyrumst......
Lífstíll | Föstudagur, 23. febrúar 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- 4.11.2011 Nú brosi ég hringinn.....
- 2.11.2011 Loksins.....loksins.
- 8.7.2011 Á hann við Ísland.....?????
- 2.7.2011 Ef sumir væru við suma.....!!!!!
- 27.6.2011 Ja hérna.
- 4.6.2011 Forseti Alþingis
- 31.5.2011 Banna.....banna.....
- 29.5.2011 Frú Jóhanna
- 10.5.2011 Góð fyrirmynd.....
- 6.5.2011 Pirraður þingmaður.
- 2.5.2011 Þvílíkt grín......hahaha
- 13.4.2011 Allt fyrir stólana.....
- 13.4.2011 Utanþingsstjórn......ekki seinna en núna .....strax.
- 10.4.2011 Jæja....hvað segið þið nú.....vinstra fólk
- 9.4.2011 Nú er spennandi að vita úrslitin.......
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
ghelga
-
olafurfa
-
agny
-
ak72
-
andrigeir
-
blossom
-
sjalfbodaaron
-
axelaxelsson
-
axelthor
-
asthildurcesil
-
baldher
-
birgitta
-
bjarnihardar
-
gudmundsson
-
brahim
-
gattin
-
borkurgunnarsson
-
carlgranz
-
austurlandaegill
-
einarbb
-
einararnason
-
emilkr
-
frode
-
gretarmar
-
bofs
-
noldrarinn
-
gthg
-
hallarut
-
maeglika
-
harhar33
-
hehau
-
hildurhelgas
-
drum
-
don
-
fridust
-
ingagm
-
golli
-
isleifur
-
boi
-
jensgud
-
naflaskodun
-
joiragnars
-
jonaa
-
jamesblond
-
islandsfengur
-
jonsullenberger
-
prakkarinn
-
ktomm
-
hugsadu
-
katrinsnaeholm
-
kolbrunb
-
hrafnaspark
-
larahanna
-
altice
-
ludvikludviksson
-
lydurarnason
-
manisvans
-
morgunbladid
-
poppoli
-
rassoplusso
-
kotturinn
-
palmig
-
hux
-
hafstein
-
raksig
-
ransu
-
rlord
-
robertb
-
rutlaskutla
-
fullvalda
-
sigro
-
sighar
-
stebbifr
-
geislinn
-
steina
-
svanurg
-
christinemarie
-
tibsen
-
eggmann
-
vilborg-e
-
ippa
-
vga
-
zordis
-
kermit
-
steinisv
-
thorhallurheimisson
-
thj41
-
thorsaari
-
iceberg
Ágúst 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.8.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 118630
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar