Að borga til baka.....

Þetta er hefndarmynd af bestu gerð,spennan er í algleymingi. Það er ekkert hikað bara framkvæmt og það sem meira er manni finnst það sjálfsagt. Og kannski gerir, einmitt það myndina svona spennandi.

Þetta er sannkallaður spennutryllir og það með Liam Neeson, á þessu átti ég ekki von. Myndin fær 4 stjörnur og á þær allar skilið, þó fleiri hefðu verið.

Luc Besson á hluta í þessari mynd á móti Robert Mark Kamen og þeim hefur í sameiningu tekist vel upp.

TAKEN en það heitir myndin á ensku fjallar um Bryan Mills sem fer til Parísar til að endurheimta dóttur sína af fyrra hjónabandi en hún þurfti leyfi hans fyrir ferðinni þar sem hún var ekki nógu gömul til að fara á eigin spýtur. Og þar byrjar ballið en auðvitað er hann kynntur til sögu í byrjun myndar og hvernig honum líður tilfinningalega gagnvart dóttur sinni.

Liam Nesson er ekkert minna en frábær í þessu hlutverki, hann hefur nefnilega ekki verið að leika þessa Bruce Willis harðjaxla, því meira kemur þessi frammistaða hans á óvart.

Ég mæli hiklaust með þessari mynd.....hún er þrælgóð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband