Með bein í nefinu....!!!

Það hefði ég svarið að Spánarkonungur hefði slíkt bein í nefinu, að hann segði Chaves að þegja. Í rauninni er Spánarkonungur að þverbrjóta allar konunglegar reglur með þessari hegðun, venjan er sú að þeir konungbornu segja ekki múkk, á hverju sem dynur.

Ég var stödd úti á Spáni þegar Zapatero vann sigur í kosningunum og sigraði Aznar. Þetta voru sögulegir tímar, hryðjuverkin sem unnin voru á járnbrautarlestunum þegar191 farþegi lést, voru talin hafa haft, áhrif á úrslit kosninganna og að auki það, að Zapatero lofaði því að kalla heim allt spænskt herlið frá Írak fyrir lok maí það sama ár og hann stóð við það.

 


mbl.is Spánarkonungur sagði Chaves að þegja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Við familían sátum saman og horfðum á fréttirnar og urðum fyrst gjörsamlega hlessa yfir framkomu konungsins okkar, síðan var þetta frekar fyndið.  Zapatero stendur sig mjög vel á þessari samkomu en mikið djö .... er Hugo Chaves mikill ruddi og yfirþyrmandi ókurteis!  Konungurinn sem er alltaf ýkt diplo fann sitt mannlega eðli og lét í það skína.

Við skulum bara vona að afleiðingarnar verði ekki miklar!  Forseti Argentínu þykir mér ekki lofa góðu heldur.  Það verður forvitnilegt að sjá samskipti hennar og Hugo.

Sunnudagskveðjur!

www.zordis.com, 11.11.2007 kl. 09:52

2 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Ég er næstum því meira hissa á konungnum en Chaves, hann á eftir að læra mannasiðina. En ég held samt að við þetta atvik færist konungsfjölskyldan svolítið nær fólkinu, hún sýnir þó mannleg viðbrögð....eða hvað?

Þessir S-Ameríkubúar eru svolítið sérstakir og blóðheitir þá er ég að miða við N-landa búa....

Takk fyrir innlitið,

Sóldís Fjóla 

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 11.11.2007 kl. 10:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband