Dómskerfið er handónýtt !!!!!!!!!!!!!!!

Það þýðir víst ekkert að spyrja, hvað er að íslensku dómskerfi.? Nauðgunarbrot eru bara milduð í hæstarétti, ef eitthvað er. Við höfum, og það ekki að ástæðulausu, hneyklast yfir sögum af bananalýðveldunum og allt það sem lýðst þar, en erum við nokkuð betur sett. Alls ekki miðað við dóma. Dóms-og réttarkerfið segir þó nokkuð um samfélagið sem við búum í.

Það að nauðga konu á Íslandi er sko ekkert mál, það er hægt að fara inn á klósett og loka og læsa kyrfilega á eftir sér, (menn kunna jú almenna kurteisi,það er bara verið að nauðga) allar staðreyndir málsins benda til hrikalegrar misnotkunar, en samt fellur dómurinn nauðgaranum í vil. Eru sumir ekki læsir, er ekki lagadeild við HÍ þar sem kenndur er t.d.refsiréttur og reyndar ýmislegt fleira sem viðkemur lögunum. Eru lögin ekki til að vernda borgarana?

Sem betur fer hefur Mbl.bloggið látið í ljós hvaða skoðun þeir hafa á þessum dómum, en virkar það?

Fólk er sem lurkum lamið og gráti næst yfir nauðgunardómunum, foreldrum ofbíður að samfélagið skuli ekki gæta þegna sinna betur að þetta sé það sem bíður barnanna okkar. Ömurlegir dómar og fólk sem bíður þess jafnvel aldrei bætur að þrjótar sem ættu að vera bak við lás og slá, ganga lausir og hreykja sér jafnvel af framtakinu. Nauðgun er ekkert mál á Íslandi, það segja dómarnir okkur.


mbl.is Bloggheimar loga vegna dóms yfir nauðgara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband