Matur er mannsins megin....

Skrapp í smá Sight Seeing með Þjóðverja nokkrum og fengum við okkur að snæða bara,súpu og salat, þetta var um hádegisbilið. Þegar reikningurinn kom brá Þjóðverjanum virkilega, upphæðin var himinhá,allavega að hans mati og reyndar mínu líka. Er allt svona dýrt á þessu rigningarskeri, hann var súr á svipinn og í bragði eftir þennann reikning, steingleymdi íslenskri náttúrufegurð og öllu þessu sem við íslendingar notum í þeim tilgangi að laða ferðamenn til landsins. Dagurinn var algjörlega ónýtur, maðurinn fór að tala um benzínverð hérna, (en það er dýrt allsstaðar) og verðið á hinum ýmsu hlutum s.s. hótelgistingu og ferðalöngunum sem koma með tjald með sér skríða inn í það og fá bullandi kvef og jafnvel lungnabólgu og verða að fara á spítala,og það kostar sko sitt.

En það kostar líka í útlöndum að fara út að borða, en auðvitað komust engin skynsamleg rök að í þessu máli. Ég fer aldrei aftur út í Sight Seeing eða út að borða með Þjóðverja. Crying


mbl.is Dýrast að fara út að borða í Lundúnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Þér væri nær að koma út að borða með mér  gætum meir að segja grillað heima og sofið á sólþakinu .....  Annars hefur veðrið hér á Spáni kólnað á tveimur síðustu sólarhringum, rignt á nóttunni með sólarblöndu yfir daginn. 

Tuð er alltaf leiðinlegt, alveg sama frá hverjum það kemur en viðurkenni að þjóðverjar eru spes og ekki að undra að þegar ég vann á Hótel Esju að þeir voru sérstaklega vaktaðir í morgunverðarhlaðborðinu svo þær bæru ekki út hálfan salinn af mat!

Sight seeing er gaman!

www.zordis.com, 12.9.2007 kl. 20:03

2 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Ég kem mér örugglega í mat á Spáni þegar þar að kemur. Tuð er alveg ömurlegt, en ég held ég velji mér einhvern af öðru þjóðerni, næst...humm og hemm þegar ég fer Sight seeing. Þjóðverjar eru samir við sig....hehe.

Ég var svo vel þenkjandi að ég keypti Víkingaskip með gömlu víkingapari með fjársjóðskistu fyrir aftan gamla settið og lét pakka þessu inn í sellófan svo að öll dýrðin sæist og afhenti þetta svo í  móttökunni og það vakti sko hrifningu hjá íslendingunum sem unnu þar....hehe....

Það getur bæði rignt og orðið svolítið kalt á Spáni....af öllum stöðum. En mér líkar það samt, býsna vel.

Sóldís

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 12.9.2007 kl. 22:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband