Michael Moore

Hann hefur heldur betur tekið á ýmsum málum í USA og virkar þarafleiðandi ekki vel á bandarísk stjórnvöld. En USA ætti að taka til heima hjá sér, ekki veitir af, Michael Moore er fínn í þeim tiltektum. Wink
mbl.is Bandarísk yfirvöld rannsaka Kúbuferð Michaels Moore
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Finnst frekar sorglegt hvernig Michael Moore er orðin einhverskonar hetja í Evrópu, hann er alltaf með mjög öfgafullan og að mörgu leiti rangan áróður. Ég er ekki hrifinn af stjórnvöldum í Bna en það fær mig hinsvegar ekki til þess að líka við Moore sjálfkrafa. Ef hann ætlar að halda því fram að heilbrigðiskerfið eða lífsgæði á Kúbu séu betri en í Bna þá er hann virkilega veruleikafirrtur.

Geiri (IP-tala skráð) 11.5.2007 kl. 17:38

2 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Michael Moore er nefnilega ekki veruleikafirrtur, en það eru hinsvegar ýmsir aðrir. Ég sagði ekki orð um það að heilbrigðiskerfið eða lífsgæði á Kúbu væru á nokkurn hátt betri en í USA.

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 11.5.2007 kl. 17:48

3 identicon

Nei en ég held að Moore ætli að gera það í heimildarmyndinni. Svo fá þessir menn örugglega VIP meðferð í Kúbu, Castro og félagar grípa örugglega tækifærið og hjálpa til með áróðurinn. Moore verður örugglega fagnað þarna sem alvöru sósíalista-hetju.

Geiri (IP-tala skráð) 11.5.2007 kl. 17:53

4 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Því skyldu þeir ekki fá VIP meðferð á Kúbu, það þarf ekki Castro til að sjá að ýmislegt mætti betur fara í USA og ekki heldur Michael Moore, við litla fólkið á Íslandi sjáum þetta mjög skýrt. Því skyldum við bara dansa með USA í allri vitleysunni....never...

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 11.5.2007 kl. 18:04

5 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Það má deila hvort heilbrigðiskerfið í heild sinni sé betra í USA eða á Kúbu (veruleikafirrtir hægrimenn telja það kannski ekki umdeilanlegt) en það er morgunljóst að almannatryggingakerfið á Kúbu er ljósárum á undan USA.

Elías Halldór Ágústsson, 11.5.2007 kl. 19:20

6 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Heilbrigðiskerfið í USA er ekkert til að hrópa húrra fyrir, það hefur sýnt sig. Það að Michael Moore stingur á kýlunum, þar sem sannarlega er þörf á, er eitthvað sem við ættum að hrópa húrra fyrir. Og það sem meira er, hann gerir myndirnar sýnar UNDIR EIGIN NAFNI, og hvað felst í því? Hugrekki.

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 11.5.2007 kl. 20:13

7 Smámynd: Gunna-Polly

munurinnn á heilbrigðiskerfini í Kúbu og USA er kasnki sá að á Kúbu er hugsað um sjúklinginn með hans velferð að leiðarljóisi (sjúklinguriinn nr 1 )en ekki hagkvæmni sjúkrahúss eins og í USA 

Gunna-Polly, 12.5.2007 kl. 08:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband