Nú er sumar.....

Sumarið hlýtur að vera komið jafnvel þótt að það sjáist ekki til sólar í augnablikinu. Það að vetur og sumar frusu saman er að margra áliti talið boða það, að það verði gott sumar.Guð láti gott á vita.

Manni finnst einhvernveginn þegar maður lítur til baka að það hafi alltaf verið sól að sumarlagi og snjór á veturna. En líklega hefur veðrið bara verið svona upp og ofan. Sólin skinið í heiði stundum, en í minningunni er alltaf sól.

Ef minnið er svona frábæt og bjartsýnt, þá er auðvitað langbest að hafa hlutina bara þannig, endalaust sól og sumar. Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband