Færsluflokkur: Lífstíll

Blað brotið í samfaramálum....

Nú þarf víst ekki að óttast yfirvöld, allt leyfilegt. Wink
mbl.is Samfarir heimilar á salerninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tölur og sund.....

Fór inn á mailið mitt og rakst þá á tilkynningu frá Benedikt S. Lafleur um væntanlegt sund hans yfir Ermasund, hann ætlar að reyna við Ermasund sem mér finnst alveg frábært framtak. Tilgangurinn með ferðinni er að stofna og styrkja sjóð sem heitir, : Synt gegn mannsali.....Sjóður sakleysis.

Það sem þessi sjóður felur í sér er einmitt að vernda bæði börn og fullorðna gegn mannsali, illri meðferð og kynferðislegri misnotkun. Á síðunni er að finna ótal vísbendingar um hegðun í mannlegum samskiptum, eins og þessari.: 2. Að allur almenningur jafnt karlar og sem konur, axli siðferðislega ábyrgð á viðhorfum sínum til kynlífs, með meðvitaðri breytni.

Þetta er fínt innleg í þá umræðu sem hefur verið í gangi um klámvæðingu og léttra dóma í kynferðisafbrotum. Ef einhver hefur áhuga á þessu máli þá er hægt að ná til hans í, lafleur@simnet.is.  Þetta frábæra framtak er svo sannarlega til að vekja athygli á þessum málum.

Reyndar rakst ég á fleira inni á þessari makalausu síðu og það er númeralógia. Hvert og eitt númer hefur ákveðna þýðingu. Ef maður vill láta greina nafnið sitt þá hefur hver stafur ákveðið númer og maður er víst margs vísari. T.d. 1,2,3,4,5, allar hafa ákveðna merkingu en ég veit ekki hvernig það er þegar kemur að tug, hvort að t.d.talan... 35... hefur sérstaka merkingu, kannski einhverja fyrir ákveðna manneskju, eða reyndar hvaða önnur tala sem er og stendur á tug.  Þetta er þess virði að athuga nánar. Ég bætti sem dæmi við nafnið mitt og kannski hefur það einhverja tölulega þýðingu. Ég ætla að spá í þetta. Smile


Wall Street...!!!

Þegar gerðar eru framhalds -kvikmyndir vill lopinn teygjast út í það óendanlega og stundum vill hann slitna. Ég ætla rétt að vona að vel takist til í þetta sinn því Michael Douglas er ágætis leikari. Pabbi hans, (Kirk Douglas) skrifaði sjálfur ævisögu sína og er hún með þeim betri af þeirri sortinni. Hann, sýndi nefnilega stundum ágætis tilþrif í leik líka. SO....Son Like Father....eða er það öfugt. Allavega er þessi mynd í deiglunni.


mbl.is Michael Douglas aftur í hlutverk Gordon Gekko
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandólétt.....ÚPS

Ja... því segi ég það, þau eru misjöfn áhugamálin. Ég stóð í þeirri meiningu að þegar maður væri óléttur þá hefði maður ekki bullandi áhuga á kynlífi vinkvennanna. Áhugamálin lægu annars staðar.

Sjálf er ég búin að fara í marggang upp á fæðingardeild og þar af meira að segja einn keisari með drippi og öllum þeim hörmungum sem því fylgja. Og meira, ég á líka barnabörn, að vísu á ég engan þátt í tilurð þeirra en það er reynsla útaf fyrir sig.

En, eins og kona sagði við mig einu sinni, þú sáðir fræinu.!!!! Og þar við situr í þeim efnum.

Þetta sérkennilega áhugamál Ellýar, kemur mér þessvegna töluvert á óvart. Ég man eftir því að ein vinkona mín stóð í skilnaði og talaði mikið um þennann mannræfil sem hún var gift og ýmislegt sem hjónabandinu tilheyrði og ég var algjörlega áhugalaus, enda ólétt í þriðja sinn. Getur verið að ég sé eitthvað kynköld? Úr því ég sýndi ekki betri viðbrögð. Þó veit ég uppá 10 hvernig börnin verða til, já og hef auðvitað tekið þátt í öllu saman, It Takes Too To TANGO. Wink

Kannski var þessi á græna sloppnum, nýfráskilin og virkilega þurfandi, ég giska svona á þetta af því að ég var nú ekki til staðar þegar vinkonan upplífði þessi ósköp. Eins gott að ég á ekki allar þessar vandamála vinkonur á kynlífssviðinu, Úff....mín viðbrögð væru nú saga til næsta bæjar. Crying

Ég vona bara Ellý mín að allt gangi vel hjá þér uppi á fæðingardeild. Góða ferð, þegar þar að kemur sem mér skilst nú að verði fljótlega.

 


Frábær....

Garðar Thor er ekkert minna en frábær söngvari, og að auki hefur hann útlitið með sér. Að vera svona frábær söngvari með útlit í stíl við röddina, er ótrúlegt, enda er hann Íslendingur.
mbl.is Garðar Thor ber dýran kross
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Draumar og ljós...

Við hittumst í dag, tvær náskyldar og ákváðum að búa til ljóð, mælt af munni fram. Og þetta er útkoman. Whistling 

Fegurðin lifi í fallegum rósum, .... blómstrandi við veginn,..... Mannfólkið heldur á lífsins ljósum,....lífsgleðin er þín eigin.  Höf. Fjóla Karlsdóttir

 

Ég sé þig,.... í vöku og draumi.

Mynd þín,.... svo skýr,.... í vitund minni,.... en samt,...svo óljós,.... og fjarlæg.

Án andlits,... útlínur einar.

Svart hvítir, .... draumar.

Óráðin gáta,..... um drauma.

Höf. Sóldís k.

 

Þetta var gaman að reyna.  Wink Meira örugglega seinna.

 

 

 

 

 


VÍKINGAR...

Fornmennirnir okkar eru sko ekkert minna en frábærir og koma sér vel. Ég kom við í Islandia í gær og náði mér í víking, hann er fúlskeggjaður með hjálm á höfði og horn uppúr. Hann er til í allt með aðra hendi á mjöðminni og stórkostlega öxi í hinni. Ég fékk mér hann þennann til viðbótar við annann sem ég náði í á sama stað fyrir nokkru síðan. En sá er talvert yngri, á grænni mittisskýlu, þessi er líka með hjálm á höfði og hornin eru á sínum stað. Hann er sko vígalegur með reidda öxi og skjöld á lofti líka, ekki veitir af að hafa karlmenn á heimilinu og þá tvo frekar en einn. Kissing

Í fyrstu var ég að hugsa um að klippa út karl í líkamsstærð, (a la Sólveig og löggurnar) en sá mig um hönd þar sem það var ekki alveg að virka, það var komin reynsla á það. Svo Víkingar skyldu það vera. ég sagði einum tíu ára frá þessu framtaki og fannst honum þetta flott og þá í þeim tilgangi að passa tölvuna mína, hehe. Hvað börn eru saklaus. Wink

Þeir eru so sem við tölvuna en alltaf í sjónmáli, til í slaginn.Því segi ég það, Víkingarnir standa fyrir sínu og það er sko mikið meira sport í að hafa þá á vaktinni en setja upp karlmannsskóna í öryggisskyni. Víkingar.....þeir eru mínir menn, engin spurning. Wink


Eniga, meninga....má ég vera memm....?????

Hér með auglýsi ég eftir peningum, gott væri að ráðgjafi fylgdi með. Wink
mbl.is Innleysa 66 milljarða hagnað í búlgörsku símafyrirtæki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í alvöru.....ja, hérna.....

Sinn er siður í landi hverju......hehehe.....
mbl.is Íransforseti sakaður um ósiðsemi á almannafæri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Karlmenn.....

Sumir eru svo ágætir en sumir eru ömurlegir. Íslenskir karlmenn eru nú lítið í því að flauta á eftir stelpum og flottum konum en þá gera þeir bara eitthvað annað. Og það er ekki af betri sortinni á börum og dansstöðum  nota þeir hvert færi sem gefst til að klípa í afturendann á viðkomandi með einhverjum dónalegum athugasemdum. Ef sú sem á í hlut bregst illa við þessu uppátæki fær hún það óþvegið, enda eru flestir þessara gæja með glas í hendi sér til styrktar og halds og venjulegast búnir að innbyrða nokkur glös áður. Crying Úff.....

Reynslan kennir manni að láta sem ekkert sé, bara að taka dónaskapnum, þegjandi. Það gerði reyndar ein vinkona mín en það dugði ekki til. Gaurinn ætlaði sér sjáanlega eitthvað meira og fór hraðferð á eftir henni, en innihald glasanna sem hann var búinn að innbyrða áður, lentu á stólfótum sem voru á leiðinni og hetjan lá marflöt á gólfinu. Vinkonan komst undan en þá tók ekki betra við það leyndust nefnilega fleiri á leið hennar út. Eina ráðið var að taka til fótanna sem hún ætlaði að nota í öðrum tilgangi þetta  kvöld, t.d. til að dansa. Wink Það er fínt forspil og hafði dugað vel, einu sinni. En sjáanlega ekki í þetta sinn. Geta karlmenn ekki verið sæmilega edrú á þessum kvennaveiðum sínum? Það er nú lágmarkið að standa í lappirnar.

Ég held bara að Xið mitt hafi vinningin í þetta skiptið. Halo


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband