Týndu sauðirnir.....

Hvernig sumir hlutir týnast er alveg út úr korti, en það er þó hátíð miðað við ef fólk týnist.  Ég rakst á manneskju um daginn sem ég hélt að væri endanlega glötuð, en það var ekki. Sem betur fer. Smile

Það var þekkt hérna áður fyrr að sauðir eða réttara sagt rollur týndust og fundust svo kannski eftir dúk og disk og það gerist svo sem ennþá. En það er öllu verra þegar hlutir og fólk glatast að eilífu. En stundum leynist fólk einhversstaðar og finnst svo, sem betur fer. Það gerðist í þessu tilfelli og það var svo frábært. Smile

Ráðgátur eru svo spennandi og krefjast mikils hugarflugs. Bandit Er að lesa bók eftir Alister McCall Smith, Sunnudagsklúbbur heimspekinganna, þetta er alveg ný sería. Höfundurinn kemur stöðugt á óvart, maður er stöðugt að  finna nýja fleti á honum. Í upphafi þessarar sögu kemur Ísland og Reykjavík, og sinfóníuhljómsveitin okkar við sögu, sem er að halda tónleika erlendis. Ísland er INN núna engin spurning. FootinMouth Ég ætla að lesa meira og sjá hvert stefnir, persónurnar eru áhugaverðar og  þeirra samskipti. Höfundur lætur eina persónuna vera þó nokkurn mannþekkjara og svo er að sjá hvað kemur út úr því. Ég veit nefnilega alls ekki hvert stefnir og þannig eiga höfundar að vera. Duló....Alien


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband