Uppfull af orku....

Það er fínt að byrja daginn með orkuna á útopnu. Wink Þannig var það hjá mér og entist í allann dag. Og þó var dagurinn dálítið snúinn, í mörg horn að líta en allt gekk upp. Svoleiðis dagar mættu vera fleiri.

Svo nú er ég að hugsa um að setja inn smá kjúklingauppskrift frá Póllandsförunum sem komu heim, eftir hálfsmánaðardvöl 6 kílóum léttari. Það borgar sig sjáanlega að fara til Póllands á slóðir Jónínu Ben. Smile

Kjúklingabringur steiktar í karríi, (milt karrý) og smjöri.

1 krukka af Mangó chutney.

1/2 l. rjómi.

Blandað saman.

Hellt yfir kjúklinginn sem er settur í eldfast mót, bakað í ofni í 20-30 mín.á hita 180 celcíus

Þetta er frábært. Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband