Ummm......!!!!!!

Var í laugunum í dag, þar voru stödd tvenn frönsk pör sem kysstust og knúsuðust. Sem betur fer var ég með sólgleraugu þá sást ekki að ég var að gjóa til þeirra augunum. Pinch

Auðvitað vakti þetta athæfi athygli íslendinganna sem voru staddir í pottinum, sem vissu hreint ekki hvernig þeir áttu að vera. Kannski að þeir hefðu þurft einhverja kennslu í opnum tilfinningum. Það er víst sagt, að ef maður er í góðum tengslum við eigin tilfinningar, þá láti maður þær í ljósi. Errm En í sundlaugunum? Eitthvað var landinn efins, hvort þetta væri nú staðurinn fyrir kossa og knús.Errm

Þetta er stundum spurningin, að gera hlutina á réttum stað og á réttum tíma. Vitum við ekki nokkurn vegin hvað passar, þurfum við að láta segja okkur, hvenær passar að gera vissa hluti. Kissing

En kossar og knús, myndi nú einhver segja, hverskonar fordómar eru þetta eiginlega? Frá hvaða plánetu ert þú eiginlega?  Það er nú það....um þetta og ýmislegt annað eru skiptar skoðanir, humm. Undecided Hvað má, ég bara spyr.

Heyrumst......Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

ég kem frá annarri plánetu hehehe

Ólafur fannberg, 6.3.2007 kl. 22:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband