Sumir bloggarar hérna inni eru frábærir....ekkert minna.....!!!!!

Leit inn á bloggið hans Jóns Steinars Ragnarssonar og það er sko flott. Mæli eindregið með honum. Smile

Zygmarr stendur fyrir sínu ég lít oft þar inn og verð aldrei fyrir vonbrigðum. Líttu inn NÚNA. Wink

Ég fer oft inn á Skypið, mest til að tala við ættingja sem ég á erlendis. En fyrir stuttu síðan kom ensk kona BETTÝ inn á Skypið og var aðal erindið það að hún ætlaði að ferðast ásamt vinkonu til Íslands í júní í sumar, hvernig hún ætti að vera klædd. Hvað hún ætti að setja í ferðatöskuna. Smile Það er spurningin, hvernig verður veðrið? Ég ráðlagði henni að hafa allavega með sér regnkápu, það gæti rignt í júní. Annars gæti ég ekki svarað þessu, þar sem ómögulegt væri að vita fyrirfram hvernig veðrið yrði. Að heimsækja Ísland væri hinsvegar meiriháttar ævintýri og þó ég hefði búið hér alla mína ævi finndist mér Ísland besta land í heimi. Smile

Norðmaður kom óvænt inn undir nafninu: Ivar Nordhagen, og var hann hvalfangari, veiddi aðallega bláhveli og langar hann að hitta Íslendinga sem hafa verið á hvalveiðum líka. Ég hef að vísu smakkað hvalkjöt en það er það sem ég hef komist næst hvalveiði. Enda eru það hvalfangararnir sem verið er að óska eftir. Vonandi les einhver þetta og gefur sig fram.Smile

Það er svo frábært að lesa sumt af Blogginu hérna inni, sumt er beinlínis mannbætandi og það upplífði ég í dag þegar ég las Bloggið hans Jóns Steinars Ragnarssonar, hann er örugglega góður maður, það getur enginn skrifað svona nema hafa inn í sér eitthvað gott. Að hafa hæfileikann til að tjá sig á þennann hátt er örugglega, " Talent." Smile 

Það er ennþá fleiri góðir pennar hérna inni, það veit ég. En læt staðar numið í bili. Wink

Heyrumst.....Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband