Eins og ég lít...alls ekki DÓPLEGA út.......!!!!!!

Fór í Apótek að sækja lyf og spurði um nálar í leiðinni svo ég gæti nú fengið lyfið hjá lækninum. En þá sagði stúlkan í Apótekinu að læknirinn ætti að eiga nálarnar og ég fengi engar nálar. Blush Og með það fór ég.

Ég neita því ekki að ég varð alveg undrandi á þessum svörum konunnar í Apótekinu. Er virkilega búið að misnota svo Apótekin í þessum efnum? Mér leið ekkert sérstaklega vel og þakkaði mínum sæla fyrir að það voru engir viðskiptavinir inni sem urðu vitni að þessari niðurlægingu. Lyfið sem ég fékk er óttalega sakleysislegt og hefur ekkert með Dóp að gera. Blush En svona varð endirinn í Apótekinu.

Auðvitað sagði ég lækninum frá þessu atviki, hann sagði fátt en sjálfsagt hefur hann hugsað sitt.

En svona er víst Ísland í dag, totryggnin ræður ríkjum. Engin spurning um það..!! Frown En eitt er víst að þetta vakti upp ýmsar spurningar og þar á meðal þeirri, í hverskonar þjóðfélagi lifum við?????

Heyrumst.....Woundering


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband