Sumir sjá draug (femínista) í hverju horni...

Á smáferðalagi um bloggheima hef ég komist að því að fólk er ótrúlega illa haldið andlega, og þá sérstaklega yfir þessum fréttum um Klámráðstefnuna. Langflestir líða alveg sálarkvalir og kenna femínistum langmest um þetta. Woundering Auðvitað komu þessi harkalegur viðbrögð mér til að hugsa um nokkur atvik sem áttu sér stað fyrir dálitlu síðan, eða nokkru síðan svo ég sé nú nákvæm eins og sumir. Maður nokkur var svo illa haldin útaf einhverjum kvennamálum þ.e. hann var hrifnari af konunni en hún af honum, og að auki var hún lauslát og gerði víst ýmislegt gruggugt. Og þetta náttúrulega æsti manninn upp áháa C. Það var eiginlega alveg sama um hvað ég talaði við manninn, ég hélt í sakleysi mínu að veðrið væri OK, en svo var ekki. Hann gat á einhvern dularfullann hátt fundið það út að Femínistar ættu einhvern þátt í því. GetLost

Og svona liggur landið núna, við Íslendingar erum á heljarþröm, pólitískt og allavegana vegna þess sérstaklega að Klámþinginu var blásið af. (Spaugstofan tók alveg brilljant takta um málið í gærkvöldi.) ÚFF....sér bara ekki fyrir endann á þessu hrikalega máli? Woundering Og það eru kosningar framundan.

Já...alveg rétt ég verð að klára sögu mannsins sem var með lauslátu konuna. Hann náði sér í aðra konu og allt er í lukkunar velstandi, núna allavegana. Hvað lengi sem það nú varir, það er nefnilega ferlega vont að vera draughræddur. Crying

Heyrumst.......Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

drauga hvað?

Ólafur fannberg, 26.2.2007 kl. 01:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband