Nú er rammíslenskur konudagur framundan...

Nú er Valentínusardagurinn liðinn og framundan er konudagur. Maður skyldi ætla að öll blóm væru uppurinn í tilefni af síðasta ástar degi, en að öllum líkindum verður þessu bjargað með blómin. En þarf einhverja sérstaka daga til að sýna væntumþykju? Halo

Ef við raunverulega virðum og elskum einhvern þá eigum við að geta sýnt það, undir öllum venjulegum kringumstæðum. En stundum vill það bregðast og, hugsanlega koma þessir dagar að góðum notum sumstaðar. Hver veit?..GetLost

Nú eru kennarar að sýna óánægju sína, eina ferðina til. Loforð um launahækkanir standast ekki og allt er í hassi. En kemur það börnunum til góða að hafa þetta óánægða fólk við kennslu? Þarf ekki að gera eitthvað í málunum? Við hvaða skilyrði búa svo kennarar og þá á ég við tilfinningalega.Þeir og þær eiga væntanlega börn og maka. Hvernig ganga þau samskipti þegar kennarar þurfa að vinna langt fram á kvöld og geta þar af leiðandi ekki sinnt sínum eigin börnum og makanum. ÚFF...þetta er vont mál hvernig sem á það er litið. Og manni skilst að sökin liggi hjá Sveitarstjórnum það er ekkert SMÁ...Bandit

Heyrumst.....Smile 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband