Sumir eru svo ágætir en sumir eru ömurlegir. Íslenskir karlmenn eru nú lítið í því að flauta á eftir stelpum og flottum konum en þá gera þeir bara eitthvað annað. Og það er ekki af betri sortinni á börum og dansstöðum nota þeir hvert færi sem gefst til að klípa í afturendann á viðkomandi með einhverjum dónalegum athugasemdum. Ef sú sem á í hlut bregst illa við þessu uppátæki fær hún það óþvegið, enda eru flestir þessara gæja með glas í hendi sér til styrktar og halds og venjulegast búnir að innbyrða nokkur glös áður. Úff.....
Reynslan kennir manni að láta sem ekkert sé, bara að taka dónaskapnum, þegjandi. Það gerði reyndar ein vinkona mín en það dugði ekki til. Gaurinn ætlaði sér sjáanlega eitthvað meira og fór hraðferð á eftir henni, en innihald glasanna sem hann var búinn að innbyrða áður, lentu á stólfótum sem voru á leiðinni og hetjan lá marflöt á gólfinu. Vinkonan komst undan en þá tók ekki betra við það leyndust nefnilega fleiri á leið hennar út. Eina ráðið var að taka til fótanna sem hún ætlaði að nota í öðrum tilgangi þetta kvöld, t.d. til að dansa. Það er fínt forspil og hafði dugað vel, einu sinni. En sjáanlega ekki í þetta sinn. Geta karlmenn ekki verið sæmilega edrú á þessum kvennaveiðum sínum? Það er nú lágmarkið að standa í lappirnar.
Ég held bara að Xið mitt hafi vinningin í þetta skiptið.
Lífstíll | Miðvikudagur, 2. maí 2007 (breytt kl. 13:57) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

![]() |
Fylgi Obama mælist nú meira en Clintons |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Þriðjudagur, 1. maí 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

![]() |
Hjónarúmakeppnin mikla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Þriðjudagur, 1. maí 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Wolfowitz stendur í stórræðum þessa dagana hann er víst fórnarlamb illra tungna. En rýkur nema eldur sé undir. Það er málið.
Óneitanlega verður maður alltaf tortrygginn þegar Bush tekur að sér að verja málið. Falskar ásakanir....hemm.
![]() |
Wolfowitz segist fórnarlamb ófrægingarherferðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Mánudagur, 30. apríl 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Getur það verið að hálsbólga sé að ganga? Hitti vinkonu í dag, hún kemur utan af landi og gat hún varla talað fyrir hálsbólgu, samkvæmt hennar lýsingu var eins og hún væri með rakvélablöð í hálsinum. Þótt sárlasin væri lét hún sig hafa það að fara í heimsókn til frænku sinnar sem hún hafði lofað að líta inn. Því segi ég það konur eru svo oft miklar hetjur. Hóstinn var að drepa hana, (hún er hætt að reykja f.ca. ári síðan, svo ekki var það þessvegna) og þegar hún hóstaði runnu tárin úr augunum og hún kúgaðist eins og múkki. Þetta var sko slæmt ástand.
Er þessi fjandi að ganga? Það er aldrei að vita, hvað er að ganga og þó er komið sumar.
Sumar eða ekki, hálsbólgan er enn í gangi. Ég er bara að vona að ég fái ekki þennann óþverra.
Upp með húmorinn, þetta hlýtur að lagast. Um að gera að halda í vonina.
Lífstíll | Mánudagur, 30. apríl 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
![]() |
Nancy Pelosi íhugar Íslandsheimsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Mánudagur, 30. apríl 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Jæja, þá er ég búin að sjá leikritið, Hálsfesti Helenu. Ég var búin að hugsa mikið um þetta leikrit og það ekki af ástæðulausu. Ég hef verið í sambandi við persónu inni á Skypinu sem þorir varla að viðurkenna upprunann sem er auðvitað arabískur. Þá er viðbúið að einhver úr Bush liðinu taki viðkomandi fastan og sendi til Guantanamo bara fyrir það eitt að vera arabi sem virðist þá þýða; hryðuverkamaður. Þetta er óneitanlega undarleg staða ef þjóðernið eitt gerir það að verkum að fólk er stimplað sem hryðjuverkafólk...... bara fyrir það eitt að vera arabar.
En þannig hefur tilveran víst verið allar götur frá upphafi. Við hræðumst það sem við ekki þekkjum, arabar lifa á allt öðru menningarsvæði en við Vesturlandabúar og það kom skýrt fram í áðurnefndu leikriti. Aðalsöguhetjan sem er norræn kona,á ráðstefnu í Líbanon, týnir perluhálsfesti sem er lítils virði nema tilfinningalega og ákveður að leita hennar. Í þessari leit að þessari festi, hittir hún fólk, araba, sem eru innfæddir á staðnum og hafa líka misst og glatað, sínu eigin fólki á blóðugan hátt. Þessi kynni gera það að verkum að aðalsöguhetjan gerir sér grein fyrir því, að tapa ómerkilegri hálsfesti, (að maður minnist nú ekki á litlu ástarsorgirnar sem gera fólk alveg hryllilega geðbilað og trekkt) kemst ekki í hálfkvisti við það sem þetta fólk hefur misst.
Eftir sýninguna voru umræður um verkið, en Íslendingar eru samir við sig og sögðu fátt og þó var fyllilega ástæða til umræðu. Eftir svona sýningu hefur maður önnur viðhorf til þessa fólks og tilveru þeirra.
Á laugardeginum var aðalfundur hjá Vimu sem er Vináttu-og Menningarfélag Miðausturlanda, stofnað árið 2002 af hetjunni Jóhönnu Kristjónsdóttur og ekki nóg með það, ferðafélag með einmitt það að markmiði að kynnast og sjá með eigin augum hvernig arabar lifa. Hún er með ferðir til Sýrlands/Jórdaníu, Libýu, Jemen, Óman og Íran og eitt er enn ótalið og þar slær hún metið, Jemen. Það er nefnilega í gangi stórmerkileg starfsemi í Jemen, Jóhanna hefur komið á stofn fræðsluverkefni til að koma fátækum börnum til mennta. Þetta er svo frábært framtak og ætti í rauninni að fá mikið meiri athygli en nú er. Og ekki nóg með að hún hjálpi börnunum heldur hefur hún komið á laggirnar fullorðinsfræðslunámskeiði, konur læra á saumavélar og þær læra að sauma!
Fundarstjóri var Mörður Árnason pólitíkus, eða þannig hafði ég alltaf litið á hann og þeir eru hver öðrum leiðinlegri en ekki Mörður í þetta sinn. Hann var svo skemmtilegur og strákslegur og frábær.
Þessi starfsemi Jóhönnu er meiriháttar og sannarlega þess virði að vera félagi í Vimu að vera að einhverju leyti þáttakandi í þessu framtaki. Hún er að kynna fyrir okkur þennann framandi heim, ekki til að breyta neinu heldur til að skilja. Þegar ég sá leikritið hryllti mig við þessu hræðilega lífi sem þetta fólk lifir, þar sem dauði og tortýming er við hvert fótmál.
En eins og segir um leikritið, við erum öll perlur í sömu hálsfestinni. Við erum nefnilega fólk með tilfinningar, þegar upp er staðið þá er það fólkið sjálft sem hefur mesta þýðingu, hvaða hörundslit sem við höfum og hvaða mál sem við tölum.
Miðausturlönd hafa verið og eru enn, eins og jarðsprengjusvæði, þar ólgar allt. En eins og segir í leikskrá: Við getur ekki lifað svona lengur.
Það eina sem við getum gert til hjálpar fólki sem lifir á þessum blóðugu sorgarsvæðum, þar sem dauðinn er við hvert fótmál og mæður leita endalaust að dánum börnum sínum er að mótmæla og kynna okkur ástandið með opnum augum.
Góða nótt og vonandi eigið þið sæta drauma, við erum nefnilega ótrúlega heppinn.
Lífstíll | Fimmtudagur, 26. apríl 2007 (breytt 29.4.2007 kl. 23:22) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)

![]() |
Réttarhöld yfir Spector hafin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Fimmtudagur, 26. apríl 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
![]() |
Konunum sjálfum að kenna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Fimmtudagur, 26. apríl 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Enn um fóstureyðingar. Mexikóska þingið samþykkir fóstureyðingar. Sjá frétt um málið.
Nú reynir á, hver sigrar kirkjan eða þingið?
![]() |
Fóstureyðingar heimilaðar í Mexíkó |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Miðvikudagur, 25. apríl 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- 4.11.2011 Nú brosi ég hringinn.....
- 2.11.2011 Loksins.....loksins.
- 8.7.2011 Á hann við Ísland.....?????
- 2.7.2011 Ef sumir væru við suma.....!!!!!
- 27.6.2011 Ja hérna.
- 4.6.2011 Forseti Alþingis
- 31.5.2011 Banna.....banna.....
- 29.5.2011 Frú Jóhanna
- 10.5.2011 Góð fyrirmynd.....
- 6.5.2011 Pirraður þingmaður.
- 2.5.2011 Þvílíkt grín......hahaha
- 13.4.2011 Allt fyrir stólana.....
- 13.4.2011 Utanþingsstjórn......ekki seinna en núna .....strax.
- 10.4.2011 Jæja....hvað segið þið nú.....vinstra fólk
- 9.4.2011 Nú er spennandi að vita úrslitin.......
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
ghelga
-
olafurfa
-
agny
-
ak72
-
andrigeir
-
blossom
-
sjalfbodaaron
-
axelaxelsson
-
axelthor
-
asthildurcesil
-
baldher
-
birgitta
-
bjarnihardar
-
gudmundsson
-
brahim
-
gattin
-
borkurgunnarsson
-
carlgranz
-
austurlandaegill
-
einarbb
-
einararnason
-
emilkr
-
frode
-
gretarmar
-
bofs
-
noldrarinn
-
gthg
-
hallarut
-
maeglika
-
harhar33
-
hehau
-
hildurhelgas
-
drum
-
don
-
fridust
-
ingagm
-
golli
-
isleifur
-
boi
-
jensgud
-
naflaskodun
-
joiragnars
-
jonaa
-
jamesblond
-
islandsfengur
-
jonsullenberger
-
prakkarinn
-
ktomm
-
hugsadu
-
katrinsnaeholm
-
kolbrunb
-
hrafnaspark
-
larahanna
-
altice
-
ludvikludviksson
-
lydurarnason
-
manisvans
-
morgunbladid
-
poppoli
-
rassoplusso
-
kotturinn
-
palmig
-
hux
-
hafstein
-
raksig
-
ransu
-
rlord
-
robertb
-
rutlaskutla
-
fullvalda
-
sigro
-
sighar
-
stebbifr
-
geislinn
-
steina
-
svanurg
-
christinemarie
-
tibsen
-
eggmann
-
vilborg-e
-
ippa
-
vga
-
zordis
-
kermit
-
steinisv
-
thorhallurheimisson
-
thj41
-
thorsaari
-
iceberg
Ágúst 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.8.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar