Græðgi....

Jamm...því segi ég það..... að græðgin í hvaða formi sem er leiðir fólk á ótrúlegustu villigötur. Þessi nýjasta frétt Mbl. segir okkur að ganga hægt um gleðinnar dyr, það er nefnilega alddrei að vita hvað bíður hinumegin. Það er örugglega ekkert spaug að heyra fangelsisdyrnar lokast á eftir sér. Það er ekkert spaug fyrir þann sem svíkur, það er líka fyrir ættingjana sem í mörgum tilfellum eiga sér einskis ills von. Í sumum tilfella vita einhverjir um málið en segja ekkert, hvað er það: Það heitir að vera samsekur í þögn! Blush

En bíðum nú aðeins við ! Hefur ekkert gerst sem beinlínis segir til um sektina, meiri fjárráð? Sem dæmi er mjög óeðliegt að venjuleg launamanneskja geti veitt sér og fjölskyldunni ýmislegt. Vekur svona nokkuð ekki grunsemdir. Þetta eru svona smáhugleiðingar um þessa frétt....hver er raunverulega sekur ?????  Það er oft spurningin. Alien


mbl.is Sökuð um tuga milljóna umboðssvik í netbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinn E. Sigurðarson

Ég held að þetta sé greinilega á gráu svæði -- hverjir eru notkunarskilmálar netbankanna? Það er kannski fullgráðugt að stela með þessum aðferðum tugum milljóna hinsvegar..

Steinn E. Sigurðarson, 17.5.2007 kl. 17:03

2 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Má vera að bankasvæðin séu grá og það er vægt til orða tekið. EN....það er lögbrot að stela, undir hvað það flokkast, fer sjálfsagt eftir því hvernig við lítum á málin. En lögin segja þetta, hvort þau virka er aftur annað mál.

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 17.5.2007 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband