Afstaða...með eða á móti....

Ég er algjörlega á móti dauðarefsingum, eða hvað?  Þessi frétt Mbl. vekur upp ýmsar hugsanir sem ekki voru til í mínum huga áður en ég las greinina.

 Getur virkilega verið að dauðarefsingar hafi fyrirbyggjandi áhrif.?


mbl.is Rannsóknir benda til að dauðarefsingar dragi úr morðtíðni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ekki spurning um að sú hefur verið raunin í sumum löndum. T.d. jukust ofbeldisglæpir um mörg ÞÚSUND prósent í Suður-Afríku nokkurn veginn um leið og dauðarefsingin var afnumin árið 1994.

Bragi (IP-tala skráð) 11.6.2007 kl. 10:06

2 identicon

Ekki fælingaráhrif.  Ef þeir drepa alltaf morðingja, þá drepa morðingjarnir ekki aftur.  Það er ekki fælingaráhrif.

Ásgrímur (IP-tala skráð) 11.6.2007 kl. 10:23

3 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Líklega er þessi niðurstaða um glæpatíðnina rétt, ég vildi að svo væri ekki, en þetta er víst staðreynd. Mér finnst ég næstum vera að gefa Bush og bróðir hans í Texas atkvæði mitt þegar ég tek undir  þetta. Sumstaðar í USA eru aftökur leyfðar og það hefur alltaf vakið hjá mér ugg. En eftir þennann lestur er óviss og tvístígandi. Ef aftaka morðingja gæti orðið til þess að bjarga mörgum mannlífum ....  þetta er margslungið mál. Biblían segir: Þú skalt ekki mann deyða. Teljum við okkur ekki kristin?

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 11.6.2007 kl. 11:52

4 Smámynd: Halla Rut

Bragi: Getur ekki verið að um leið og dauðarefsingum var hætt að þá um leið hafi frjálsræði í heild sinni aukist.  Var dauðarefsingum ekki aflétt vegna þess að samfélagið hafði orðið frjálsara.  Mjög ervitt að benda á einn orsakaþátt í svona víðtæku dæmi.

Var aukið persónufrelsi orsök þess að morðum fjölgaði eða var það refsingin. 

Flest morð eru framin í óðagáti og ég held að fæstir hugsi þegar þeir drepa einhvern: Jæja ég fer bara í lífstíðar fangelsi svo þetta er allt í lagi.

Halla Rut , 12.6.2007 kl. 01:34

5 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Er stundum í lagi að drepa? Í sumum löndum t.d. Frakklandi er litið mildari augum á mannsdráp sem er framið í augnabliks geðshræringu....Crime Of Passion, en það sem er útreiknað, lögin líta það mikið alvarlegri augum.

Ný verið sá ég mynd, "A Time To Kill," sem segir frá morði sem að mínu áliti og að áliti kviðdómenda var full ástæða til að sýkna í og þó var maðurinn svertingi og kvikmyndin gerist í suðurríkjum bandaríkjanna,þar sem Kuklux Klan var virkilega ríkjandi. Kvikmyndin fjallar um það að tveir menn nauðga lítilli og auðvitað varnarlausri svertingastelpu sem er dóttir morðingjans. Hann drepur nauðgarana og síðan taka málaferlin við. Verjandi mannsins hvítur lögfræðingur rekur nauðgunarsöguna sem er vægast sagt ótrúlega andstyggileg, en hann klikkir út með að segja, ,,ímyndið ykkur að þetta hefði verið hvít stúlka" Það er nákvæmlega sama hver litarháttur stúlkunnar hefði verið að okkar mati, gerðin var jafn andstyggileg. En það var ekki sama á þessum stað. En ég er með það á hreinu að stundum er leyfilegt að drepa.

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 12.6.2007 kl. 16:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband