EINELTI er ekkert grín.

Ég var að lesa í DV á bókasafninu viðtal við Davíð Michelsen sem hefur nýopnað síðu inn á Facebook vegna Eineltis....það er ekkert athugavert við þennan dreng...en eru þeir/þær (kvenfólk er ekkert betra) persónuleika firrt sjálft ....eitthvað er athugavert við gamlar húsmæður og mæður sem leggja einelti fyrir sig..... það virðist vera nóg af fólki sem leggur sig niður við Einelti. Er það nema von að synir og dætur leggi sig niður við slíkt...þetta fólk (ef fólk skyldi kalla ) hefur alist upp við þennan ófögnuð.

Ég varð svo reið og miður mín  við lestur þessa viðtals að ég settist niður og ákvað að láta inn á bloggið mitt orð um málið ....ég hef mjög slæma reynslu af EINELTI....og veit fyrir víst að það getur birst í mörgum myndum.... það er ekki það versta þótt sjá á fólki líkamlega, það er þetta andlega sem er verst að þola.....og allt gert á bakið á fólki.

EINELTI er gerandanum til HÁBORINNAR skammar, í hvaða mynd sem er.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband