Frábær skáldkona

Það var ekki minnst á Doris Lessing í þættinum hans Egils sem var í sjónvarpinu í gærkvöldi, heldur bara á karlskáldin sem væntanlega fengju þessi verðlaun.

Doris Lessing, er frábær rithöfundur og á þessi verðlaun svo sannarlega skilið. Ekki það að fleiri skáld, af báðum kynjum hefði ekki átt þessa virðingu skilið, það er nefnilega mikill heiður að fá þessi verðlaun. Halldór Kiljan Laxness fékk Nóbelinn 1955  og við Íslendingar fylltumst stolti. Og höfðum til þess fulla ástæðu.


mbl.is Doris Lessing hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það eru gleðifréttir að Nóbels nefndin velji höfund sem er vel af verlaununum kominn. Nóbelsnefndin hefur stundum verið ansi skrítin í val sínu eins og að veita ekki Astrid Lindgren nóbel fyrir sitt framlag (hvar væri feminisminn án Línu Langsokk), en veita síðan austurrískum sérvitringi nóbel.

Það er því góðar fréttir að þessi frábæra skáldkona fái þá viðurkenningu sem hún á skilið.

Magnús Bjarnason (IP-tala skráð) 11.10.2007 kl. 12:15

2 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Sem betur fer MAGNÚS er Doris Lessing vel að þessum verðlaunum komin með eða án Femínisma.

Vona að þér líði vel með þennann Nóbel.

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 11.10.2007 kl. 12:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband