Alkahólismi

Þetta sama lím og hélt Hasselhoff fjölskyldunni saman, er örugglega til víða. Svo mörg eru dæmin, en allt er þetta hulið fyrir jafnvel nánustu skyldmennum. Alkahólismi er ekkert spaug, ekki bara fyrir þann sem er háður víninu, heldur þjáist öll fjölskyldan. Allir dansa með og ljúga fyrir alkann, heiðarlegasta fólk, gjörbreytist lýgur eins og það horfir, og þetta ástand getur enst ótrúlega lengi, þrátt fyrir það að fólk viti um að það getur fengið hjálp. Á endanum eru allir orðnir háðir þessu hrikalega mynstri. Það gerist ekkert fyrr en alkinn gerir eitthvað sjálfur. Nema auðvitað að fólk taki af skarið sjálft eins og var í þessu tilfelli Hasselhoffs. Eru tímarnir breyttir? Oft efast ég um það og það ekki að ástæðulausu.
mbl.is Leyndarmálið hélt fjölskyldunni saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband