Athygli...???

Bloggið er svo frábær vettvangur fyrir allskonar frásagnir það hef ég sannreynt með því að lesa blogg annarra. Fólk er að losa hugann við allskonar streituvalda með því að láta atvik eða enhverskonar uppákomur í ljósi. Frown Ef það getur það ekki líður því líklega svona (eins og þessum þungbúna sem ég setti hérna inn) og smámsaman hleðst öll vitleysan upp og fólki líður ömurlega. Það er nefnilega fínt að segja hlutina þó það sé inni á bloggi. Það er losun og gott mál. Woundering

Annars hef ég það fínt, það fer bara svo í taugarnar á mér þegar einhver ókunnugur eða með nafnleynd hegðar sér svona. Það getur ekki verið hamingjusöm manneskja. Crying Svona lítur líklega viðkomandi út að innann.

Jæja, ég var bara að láta reyna á skriftirnar og segja eitthvað. Halo

Heyrumst.....meira seinna....Happy


Það er svo frábært að fara á bókasafnið.....!!!

Ég fór á bókasafnið í dag og ætlaði bara að líta í blöðin þar sem ég fæ engin blöð. Ég var búin að taka tvær bækur tiltölulegar nýjar og var með þær með mér og var stödd uppi á lofti. Þá,... eftir að ég var búin að vera að lesa í örugglega klukkutíma, kom bókavörður upp og spurði hvort við vildum ekki koma niður það ætti að fara að lesa úr nýútkomnum bókum. Smile

Bækurnar sem höfundarnir ætluðu að lesa upp úr var Skipið, spennusaga eftir Stefán Mána og Feimnismál, eftir Sigrúnu Davíðsdóttir. Hún hefur víst búið erlendis í mörg ár og lætur bókina gerast, fyrst í New York en seinna á Ítalíu og síðast skilst mér á Íslandi. Bókin er, það sem Sigrún las, mjög munúðarfull, langt frá klámi, myndræn og ótrúlega erótísk. Vel skrifuð og það sem meira er manni langar að vita meira. Allavega hef ég mikinn áhuga og ætla að reyna að fá bókina á safninu en hún er ekki komin þar ennþá. Smile

En bækurnar sem ég náði í eru: Fólkið í kjallaranum og er eftir Auði Jónsdóttur barnabarn Halldórs Laxness, bókavörðurinn sem skrifaði bækurnar út sagðist ekki hafa verið neitt sérstaklega hrifin, samt er þetta verðlaunabók. Ég náði í aðra bók sem heitir Yosoy og er eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttir, sú bók hefur fengið mikið lof og bókavörðurinn var ásama máli. Ég ætla að byrja á þeirri bók en ég verð að ná í Feimnismál eftir Sigrúnu Davíðsdóttur, hún lofar mjög góðu. InLove Hehe.

Vona að allt sé í góðum farvegi, bið að heilsa öllum á þínum bæ Guðrún og líka hjá þér Rúna, bestu kveðjur. Sóldís k........Heyrumst.....Happy


Hláturinn lengir svo sannarlega lífið

Sumir virðast lifa lífinu gegnum aðra, á mjög svo neikvæðan hátt. Ég held satt að segja að það fólk ætti að leita sér hjálpar. Devil Hjá sumum virðist þessi á myndinni hafa tekið sér bólfestu. Blush

 Það er víst hægt að fá hjálp við neikvæðum hugsunum, það heitir heilaþvottur. Halo

Vonandi finnst lækning fyrir alla sem þjást af þessu......Sick.....

Meira seinna.....heyrumst.....Kissing

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband